|
Áhugamál og tómstundir

Stökur
Sjá hér
Ljóð
Sjá hér
Skógrækt, hreyfing, lestur og kveðskapur.
Meðal áhugamála er aðallega hreyfing af ýmsu tagi.
Auk þess að hafa lagt stund á Karate hef ég
stundað jóga smávegis og einnig Pilates æfingar. Sem
stendur stunda ég útihlaup og líkamsrækt.
Áhugamál eru einnig falleg föt en mér skilst að frá því að ég hafði
nokkurt vit hafi ég verið hin mesta pjattrófa. Um tveggja ára aldurinn vildi
ég skipta um kjóla oft á dag og harðneitaði að fara í pollagalla á
róló. Áhugi á fatnaði hefur farið ögn dvínandi, líklega vegna þess að
fataskápurinn er stútfullur.
Kveðskapur er nokkur nýr af nálinni hjá mér. Ég hef verið að lesa mig
til um bragarhætti og prófa mig áfram. Mér finnst gaman að
raða saman orðum og get gleymt mér lengi yfir þeirri iðju. Hversu góð ég
er í þessari list er best að segja sem minnst um. Ég hef þó fengið nokkurt
hrós frá velviljuðu fólki.
Félagasamtök
Einn dásamlegur félagsskapur sem ég hef verið svo heppin að vera hluti af er
Rótarýklúbbur Reykjavík-Austurbær
en í hann gekk ég árið 1998. Þar hef ég gengt trúnaðarstörfum verið m.a. stallari í
stjórn og formaður Félagavalsnefndar. Frá og með júlí næstkomandi
er ég verðandi forseti og David Pitt tekur við forsetaembættinu. Af honum
tek ég við því sumarið 2010.
Íbúasamtökin Betra Breiðholt er annar góður félagsskapur sem ég hef
tengst og sit ég í stjórn þeirra samtaka. Markmiðið er að gera
Breiðholtið að æ betri stað til að búa á fyrir fjölskyldur sem það
kjósa. Ég gegni varaformennsku í ÍBB frá síðasta aðalfundi sem haldinn
var í desember 2008.
Breiðholtið 1
Æ betri byggð,
Breiðholtið er.
Skógar, Stekkir og Seljahverfið.
Í efra og neðra,
Hólar, Berg og Bakkarnir.
Íbúar margir í Mjóddinni mætast.
Breiðholtið 2
Æ betri byggð,
Breiðholtið er.
Stekkir, Selin og Skógar.
Hólar, Berg og Bakkar.
Breiðholtið, Efra og Neðra,
Íbúar margir í Mjóddinni makka.
Skógrækt
Meðal
áhugamála
er uppgræðsla og skógrækt á landi okkar hjóna á Rangárvöllum. Þar
hefur farið fram ræktun í 18 ár. Um 30 þúsund
plöntum hefur verið plantað og er ekkert lát þar á. Í sumar verður
lögð lokahönd á byggingu sumarhúss á svæðinu sem
gerir veruna þar enn skemmtilegri. Arkitekt hússins er sonurinn Þorleifur
Jónsson sem lauk arkitekarnámi sínu frá Arkitektarskólanum í Árósum um
síðustu áramót. Fyrstu verkið þegar tekur að vora er að ganga frá
rotþró og setja upp eldhúsinnréttingu.
Hreyfing
Helsta áhugamál mitt undanfari 3 ár er Karate. Í þeirri íþrótt er ég
nú með 3 KYU sem er fyrsta brúna beltið af
þremur og er þar með hafin undirbúningurinn fyrir svarta beltið. Ég hef
reyndar ekki verið dugleg að sinna Karate upp á síðkastið en þess í
stað látið duga að hlaupa úti, fara í líkamsrækt og stunda Pilates
æfingar.
Aðeins
meira um Karate.
Röðin á beltunum er:
hvítt
= byrjendur,-
gult,-
appelsínugult,-
rautt,-
grænt,-
blátt,-
fjólublátt, því næst 3 brún
belti (1. kYU, 2. KYU og 1. KYU). Eftir það kemur svarta
beltið sem skiptist einnig í 3 stig: fyrsta, annað og þriðja DAN.
Hvað
er Karate og hvaða ávinningur fæst með því að stunda Karate?
Orðið
karate merkir “tóm hönd” og vísar til japanskrar bardagalistar. Tækni í
karate skiptast aðallega í fernt: högg, stöður, spörk og varnir. Hefð er
fyrir því í flestum löndum að tækniheiti og stöður beri japönsk heiti.
Það gerir það að verkum að engu máli skiptir frá
hvaða landi þjálfarar koma eða hvaðan iðkendur koma; allir geta skilið
hvað um er að ræða.
Karate
tekur til margra ólíkra þátta í tilveru þess sem íþróttina stunda. Iðkun
karate reynir til að mynda á marga ólíka vöðva líkamans suma hverja sem
í daglegu lífi eru ekki mjög virkir. Karate reynir sér í lagi á vöðva í
fótleggjum og lærvöðva. Næst skal nefna þjálfun andardráttar
en með réttri öndun eykst úthald og almenn vellíðan að sama skapi. Sá
sem leggur stund á Karate öðlast aukna sjálfsstjórn og aukinn viljastyrk.
Aukinn viðbragðsflýtir er enn eitt sem fæst með því að stunda Karate.
Þeir
sem hafa einna mest áhuga á almennri líkamlegri hreyfingu eru sem sagt ekki
sviknir af því að æfa þessa íþrótt.
En
víkjum nú að öðrum einkennum Karate. “Virðing” og “prúðmennska”
er samofin í uppruna karate. Í karate er þess vegna gerð krafa um að iðkendur
komi fram af kurteisi og yfirvegun jafnt gegn “andstæðingi” sínum sem
öðru fólki. Eitt helsta merki í karate um að sýna ávallt kurteisi og virðingu
eru hneigingar.
Þeim sem iðka karate ber að hneigja sig fyrir kennara sínum fyrir og
eftir æfingar og fyrir “andstæðingi sínum” bæði fyrir og eftir hverja
tækni. Allir hneigja sig þegar þeir koma inn í æfingasalinn og einnig þegar
þeir yfirgefa salinn.
|