Sálfræðistofan,
Suðurlandsbraut 6,

6. hæð til hægri inn í enda gangs.
Sama bygging og Nings.

Ég er með 18 ára reynslu sem sálfræðingur.
Hef unnið með börn, unglinga, pör og einstaklinga.

 Hlaut sérfræðingsviðurkenningu í klínískri sálfræði frá Landlæknisembættinu 2008.

Sjá nánar um menntun og störf í Starfsferill hér til vinstri.

Tímapantanir í síma 899-6783 eða með tölvupósti:
kolbrunbald@simnet.is
kolbrunb@hive.is

Niðurgreiðsla kostnaðar
Ýmis stéttarfélög greiða niður viðtalsmeðferð. Reglurnar eru mismunandi eftir stéttarfélögum. Sum stéttarfélög niðurgreiða þjónustuna aðeins að hluta til. Upplýsingar um niðurgreiðslur veita stéttarfélögin sjálf.

Ég er með tæplega tveggja áratuga reynslu sem sálfræðingur (sjá menntun og störf undir Starfsferill hér til vinstri). Ég hef sérhæft mig m.a. á eftirfarandi sviðum: 

  • Sálfræðileg ráðgjöf og meðferð fyrir einstaklinga og fjölskyldur
  • Hjóna,- og pararáðgjöf. 
  • Skilnaðar,- forsjár,- og umgengnisráðgjöf
  • Uppeldisráðgjöf: uppeldistækni og samskipti á heimili.
    -Almenn fræðsla og þjálfun í samskiptafærni
    -Foreldrahæfnismat og sálfræðilegar greiningar
    -Handleiðsla fyrir stjórnendur og fagfólk
    -Sálfræðileg ráðgjöf við einstaklinga í málum sem tengjast starfi þeirra.

Námskeið/fyrirlestrar:

Minn líkami, mín sál.

Hvernig kennum við börnum að varast áreiti kynferðisafbrotamanna?
Fyrirlestur ætlaður skólum og foreldrum.

Færni í samskiptum gerir þig öruggari í starfi.
Fyrirlestur um hvernig hægt er að auka næmni gagnvart börnum og unglingum og þar með auka gæði samskipta.
Fyrirlestur ætlaður m.a. starfsfólki grunnskóla, sundstaða og íþróttahúsa.

Hvorki barn né fullorðinn.
Leiðbeiningar fyrir
foreldra unglinga, sjá nánar neðar á síðunni.

Nánari upplýsingar í síma 899-6783 eða kolbrunbald@simnet.is


Í nærveru sálar ég sit,
skynja manneskjuna sterkt.
Hvað er það í lífinu sem gefur lit?
Leitar og finnur sá sem það vill.
En lífið er meira en leikur einn,
léttlyndi að eilífu þekkir ei neinn.
Í lífsins skóla lærist margt,
lausnir í draumum felast (KB).

Í Nærveru Sálar, mánudögum 
kl. 21.30 á ÍNN.

8. mars.
Í háloftunum. 
Skyggnst með Guðmundu Jónsdóttur, flugfreyju inn í flugfreyjustarfið en einmitt þetta starf hefur verið og er enn draumastarf fjölmargra manna og kvenna á ýmsum aldri. Hverjir eru helstu kostirnir og ókostirnir við starfið og hvað hefur einna helst drifið á daga Guðmundu í flugfreyjustarfinu?

1. mars.
Hverju skilaði arfleifðin? Þáttarstjórnandi ásamt frændfólki sínu Heiðari Jónssyni, snyrti og Björk Vilhelmsdóttur, borgarfulltrúa ræða um góðu gildin sem ömmur þeirra, systurnar María og Stefanía Ásmundsdætur frá Krossum kenndu og boðuðu.

22. feb.
Ófrjósemi. Vonir og væntingar þeirra sem glíma við ófrjósemi/síðbúna ófrjósemi. Formaður Tilveru, samtaka um ófrjósemi, Katrín B. Baldvinsdóttir og Hulda Hrönn Friðbertsdóttir, einnig í stjórn Tilveru, ræða þessi viðkvæmu og erfiðu mál út frá ólíkum sjónarhornum.

11. feb.
Í sporum nýnema Háskóla Íslands.
Fyrsta árið er ekki alltaf dans á rósum. Gríðarleg samkeppni og mikið fall er í sumum greinum. Jónína Ó. Kárdal og María Dóra Björnsdóttir ræða hvernig náms- og starfsráðgjafar skólans styðja við bakið á nemendum.

8. feb. 
Staða ættleiðingarmála á Íslandi í dag.
Gestir eru Hörður Svavarsson form. félagsins Íslensk ættleiðing og Sigrún Kristinsdóttir, höfundur bókarinnar Óskabörn.

1. feb.
Hugræn atferlismeðferð, helstu sérkenni þessarar árangursríku meðferðarnálgunar.

Gestir eru Oddi Erlingsson og Sóley Davíðsdóttir sérfr. í kínískri sálfræði
.

25. jan.
Að lifa með athyglisbrest. (E)
Sigríður Jónsdóttir, markþjálfi og fyrrum varaformaður ADHD samtakanna er gestur þáttarinn

18. jan.
Hvað get ég gert við miklar áhyggjur? (E)
Kynning á bók fyrir börn til að sigrast á kvíða.
Gestir eru sálfræðingarnir Árný Ingvarsdóttir og Thelma Gunnarsdóttir, þýðendur bókarinnar.

11. jan.
Skyggnst inn í veruleika lesblindra (E)
Eva Lind Lýðsdóttir glímir við lesblindu. Hún sýnir í máli, myndum og orðum hvernig tilveran lítur út frá hennar sjónarhorni. 

04. jan.
PMT uppeldisfræði sem virkar.
Margrét Sigmarsdóttir, sálfræðingur.

28. des.
Unglingsárin og helstu einkenni þeirra.
Hverjar eru þarfir unglinga? 
Hver er kjarni góðra samskipta og hverjar er öruggustu forvarnirnar?
Unglingurinn tölvunotkun og Netið.

21. des.
Leikföng sem fela í sér áskorun og stuðla að aukinni færni barnsins.

Vöndum valið við kaup á leikföngum í jólapakkan.
Sigríður Þormar, hjúkrunarfræðingur og verslunareigandi og Valgerður A. Þórisdóttir, leikskólastjóri í Foldakoti.

14. des.
Fötluð gæludýr.
Anna Ingólfsdóttir, bókarhöf., Hanna M. Arnórsdóttir, dýralæknir, og hinn þrífætti köttur Mjallhvítur.

07. des. 
Megastuð í Múlalundi.
Helgi Kristófersson og Ólafur Sigurðsson lýsa upplifun sinni af vinnustaðnum.

Sérsveitarhugmyndin
Hér er sett fram hugmynd um hvernig hægt er að hafa til reiðu utanaðkomandi fagteymi sem þolendur eineltis geta leitað til telji þeir sig ekki fá lausn sinna mála á þeim stað hvort heldur í skóla eða á vinnustað, þar sem eineltið á sér stað.

Hvorki barn né fullorðinn.
Leiðbeiningar fyrir
foreldra unglinga

Helstu þroskabreytingar, áhrifaþættir og kynjamismunur
Mismunandi uppeldisnálganir 
Helstu þarfir og væntingar unglinga
Samskipti í fjölskyldunni
Unglingar, tölvunotkun og Netið
Unglingar og áfengi eiga ekki samleið: 
Þarf ég að hafa áhyggjur af mínu barni?
Hlutverk og viðbrögð foreldra, helstu úrræði.

Við upphaf grunnskólagöngu.
Námskeið fyrir foreldra 6 ára barna

Ágrip af þroskasálfræði
Algeng vandamál barna
Fyrirmyndir og forvarnir
Agi og agavandamál
Grunnreglur í uppeldi
Kjarni góðra samskipta
Að undirbúa barnið fyrir skólagöngu 
Samskiptir foreldra og skóla